Það er nú kominn tími á að mður bloggi ég er búin að vera
helvíti löt þessa dagana ég er ekki búin að nenna að gera rassgat
síðan að ég kom heim úr glæsilegri ferð í reykjavík þar sem gert
var við bílinn minn og ég djammaði og ráfaði um kringluna ofl
skemmtilegt
Ég bóðir minn og siggi fyrrverandi mágur minn hehe brunuðum
suður á föstudaginn og það varr sko ekkert slakað á bensíngjöfinn
fyrr en ég var mætt heim til mömmu hennar mæsu þar sem við mæsan
skelltum okkur í okkar fínsta púss og spörsluðum í rifurnar!! þaðan
var haldið í miðborgina á pöbbarölt einhvað sem ég hef nú ekki gert
leingi imm... hvað það var ynislegt að geta farið á milli staða en
ekki neiðast til að hanga á sama staðnum einsog hérna fyrir vestan
já við höfðum með okkur eldribróðir hennar marí hann Jón þór sem
var nú orðinn annsi vel í glasi þegar við lögðum í hann úr
sveitinni(þar sem mamma mæsa býr) við vorum nú ekki búin að vera
lengi í bænum þegar að við urðum að fara með kallinn í taxa
og senda hann heim því að hann var orðinn einhvað æstur... Við
maría héldum á leið leingra í bæinn og enduðum á gauknum þar sem
við borguðum okkur 800kr inn án þess að vita hvað væri í gangi en
þetta var horror ég átti ekki orð því þegar við vorum ný sestar hjá
ingvari hinum bróðir hennar og ný búnar að fá okkur bjór þá kemur
hljómsveitin að spila En ég hélt að ég yrði ekki eldri þetta var
Sign að spila ég var fljót að standa upp og yfirgefa bjórinn og
staðinn og við héldum á glaumbar þar var fín stemmning einsog
alltaf en við áhvöddum sammt að kíkja á fleiri
búllur.... svo var endað á því að fara að fá okkur viðbjóðslega
sterkt taco sem var reindar mjög gott....
Laugardagur : það var vaknað snemma heima hjá maríu í verstu
þynku sem ég get munað eftir (þó þær séu margar)!! þá var brunað
til þóru á miðbæjarbúlluna og pikkað hana upp og við fórum í
kringluna!! þar var nottla sama rútínan einsog alltaf hjá okkur
byrjuðum á því að fá okkur 1 kaldan svona fyrir verslunar ferðina
haha.... sem endaði sammt þannig að eftir 4 tíma rölt þá kom ég
pokalaus út!! hvernig er þetta hægt ég segi nú ekki annað!! við
fórum svo heim og lögðum okkur smá pöntuðum pizzu og gerðum okkur
sætar fyrir djammið!! Það kíkti fullt af fólki á okkur svo var
byrjað á óliver sem ég hálf miglaði við að horfa á þetta þotulið og
snobbaða fólk.... þá fórum við á sólon sem var algjör snelld
dönsuðum þar einsog vitfirðingar..... fórum aðeins á pravda og
heim....
Sunnudagur fór nú messt í að hanga heima hjá þóru og þynnkast
kíkti á ömmu og í aðra heimsókn
mánudagur......
Þriðjudagur fór heim með flugi þar sem að bílinn minn var ekki
reddý
já svo lítur nú út fyrir það að ég sé nú að fara aftur suður
núna á morgun....